Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2009

Krónan kemur alltaf til baka

Seðlabanki Evrópu hefur ekki skráð gengið á íslensku krónunni síðan 3. desember en þá var 1 evra jafngildi 290 íslenskra króna, sjá hér:

http://www.ecb.int/stats/exchange/eurofxref/html/index.en.html 

Auðvitað er núverandi gengisskráning háð miklum takmörkunum ennþá þar sem að fyrirtæki og almenningur hafa ekki greiðan aðgang að gjaldeyri.  Það er mikilvægt að hægt sé að fylgjast með verðmyndun á helstu nauðsynjavörum, olíu, bensíni og matvöru á gagnsæjan hátt. Það þurfa allir aðhald og það er lífsnauðsynlegt að fjölmiðlar fylgi á eftir með verðkönnunum hjá helstu birgjum.

Það er líka ljóst að núverandi styrking er mjög jákvæð fyrir sálarlífið hjá þeim eru með erlend myntkörfulán, þeirra staða lagast núna en bölvuð verðtryggingin heldur hinum föstum í fátæktargildrunni.


mbl.is Evran nálgast 150 króna múrinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nótt hinna löngu hnífa

Það er mikilvægt að bankastjórar gömlu bankanna gangi fram fyrir skjöldu og svari þeim ávirðingum sem á þá eru bornar. Undir handleiðslu gömlu bankastjóranna hafa starfað hundruð manna sem líka sæta ávirðingum vegna opinberrar umræðu. Í núverandi árferði er mikilvægt að vinnan við endurskoðun gömlu bankanna verði hraðað eins og kostur er, enda ótækt að láta málin hanga í lausu lofti. Úlfur úlfur má ekki verða viðkvæðið núna þar sem æsingur og læti ráða för. Nú þarf skynsemi og aga. Maður veltir því hins vegar fyrir sér hvort að nótt hinna löngu hnífa sé runnin  upp í íslensku þjóðfélagi. Menn eru saklausir þar til sekt sannast, eða  hvað? 


mbl.is Engin stór lán til Tchenguiz síðustu dagana fyrir fallið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samfylkingin sér um sína

Það hefur verið átakanlegt að fylgjast með hlutverki varaformanns Samfylkingarinnar á síðustu vikum og hvernig hann hefur verið hreinlega settur til hliðar. Ég held að pistill Fritz fyrrverandi formanns Samfylkingarfélagsins í Reykjavík segi allt sem segja þarf. Pistillinn er hér: http://fritzmar.blog.is/blog/fritzmar/


mbl.is Ágúst Ólafur hættir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Framsókn höndlar fjöreggið

Það er alveg ótrúlegur ferill hjá Sigmundi sem er núna farinn að höndla fjöreggið sjálft sem lykilmaður í núverandi stjórnarmyndundarviðræðum. Það er ljóst að þau ummæli sem að hann hefur haft í frammi með það að verja nýja stjórn vantrausti þarf meiri og flóknari undirbúning fyrir stjórnmálamann framtíðarinnar en einfaldar yfirlýsingar í fjölmiðlum. Hvernig geta menn tjáð sig um að þeir ætli að standa að ríkisstjórnarsamtarfi og verja stjórn falli án þess að hafa nokkra hugmynd um innihald og efni samstarfsins, ber það vott af stjórnmálalegum aga og ábyrgð nú um stundir? Það er hinsvegar rétt hjá Sigmundi að þessi stjórn mun aðeins hafa takmarkað umboð fram að næstu kosningum.


mbl.is Sigmundur: Viðræður taka tíma
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ballið er búið

Jæja þá er ballið búið og sætasta stelpan á dansleiknum farin til síns heima en eftir standa vonbiðlarnir og ráða sínum ráðum. Kossinn sem kveikti neistann forðum er grafinn og gleymdur, en það gerir ekkert til því það er alltaf hægt að koma nýjum dansherrum út á gólfið. Þeir sem hafa staðið utan sviðsljóssins hafa nú tækifæra á að stíga inn á sviðið. Þjóðin hefur því miður engan áhuga á dansleikjum núna heldur snúast hlutirnir um að hafa starfhæfa ríkisstjórn næstu mánuðina enda bíða brýn úrslausnarefni, sértækar aðgerðir í atvinnumálum, aðgerðir til handa fjölskyldum í landinu og síðst en ekki síst að fyrirtækin í landinu geta starfað óhindrað.  Öll óvissa um stjórnarfarið mun ekki bæta núverandi ástand heldur er líklegra að biðstaða skapist í þjóðfélaginu á meðan beðið er. Fyrst að núverandi ríkisstjórn með ríflegan þingmeirihluta gat ekki haldið samstarfinu gangandi næstu mánuðina þá er ljóst að óvissa ríkir um framhaldið. Nú er bara að vona að næsta ríkisstjórn verði ekki vanhæf líka!

 


Björgvin spilaði út ásnum á ögurstund

Ólíkt hafast þeir að, stjórnmálamennirnir sem að segja af sér ráðherradómi, og  embættismaðurinn sem er þvingaður til þess að segja af sér. Ég held að þjóðin hafi kallað eftir þessum aðgerðum en menn kusu ekki að ganga í takt við vilja þjóðarinnar. Hvað sem því líður þá er ljóst að forstjóri Fjármálaeftirlitsins getur ekki bankað aftur upp á hjá gamla vinnuveitandanum. Þessu eru öfugt farið í pólitíkinni því kjósendur muna aldrei lengra en einn dag í einu og vitandi þetta hefur Björgvin væntanlega spilað út sínum ás núna á ögurstund.

Á endanum eru það náttúrulega kjósendur sem að veita mönnum umboð til þess að halda áfram en það er ólíklegur veruleiki embættismannsins og stjórnmálamannsins þar sem sá fyrrnefndi á ekki afturkvæmt en hinn getur átt 9 líf.


Stjórnarkreppa að skella á?

Hlutirnir gerast hratt þessar stundirnar og með afsögn viðskiptaráðherra og uppsögn forstjóra Fjármálaeftirlitsins tekur við ákveðin óvissa. Það hefði verið eðlilegra að þessi uppsögn hefði komið fyrr í ferlinu þar sem núna er stutt til kosninga og nauðsynlegt að halda landsstjórninni saman fram að þeim. Það er hreint skelfilegt til þess að hugsa að í hönd fari mánuðir þar sem að ein allsherjar pattstaða sé í spilunum, slíkt er hvorki gott fyrir þegna þessa lands né þau fyrirtæki sem að nú róa mörg hver lífróður víð það að reyna að halda sér á floti. Kannski verður búið að slíta stjórnarsamstarfinu þegar kemur fram á kvöld? Hver veit?

Af hverju tekur viðskiptaráðherra þennan pól í hæðina núna þegar menn hafa ekki stigið í takt við vilja fólksins í langan tíma. Lannski hefði verið eðliegt að menn biðu allavega eftir niðurstöðu af fundi forystumanna stjórnarflokkanna áður en þessum ás er spilað út á ögurstund. Það er eins og menn séu að reyna að bjarga sér af sökkvandi skipi til þess eins að segja að þeir hafi axlað ábyrgð og til þess er leikurinn gerður að geta horft framan í kjósendur í framhaldinu. Það er greinilegt að Samfylkingin hefur ekki getað höndlað núverandi ástand og flestir forystuþingmenn hennar eru þegar búnir að kikna undan pressunni eins og komið hefur fram í fjölmiðlum.

Spurning dagsins er hafa menn kjark og þor til þess að halda stefnunni fram að kosningum? Mun það breyta einhverju að fá inni nýja ríkisstjórn í 3 mánuði?

 

 


Fast skotið hjá Birni

Dómsmálaráðherra skýtur föstum skotum í pistli sínum á www.bjorn.is þar sem að hann ræðir um framkomu þingmanna vinstri grænna og ræðir meinta óvirðingu þeirra við störf lögreglumannanna sem voru að voru að verja þinghús landsmanna fyrir ágangi mótmælenda. Maður veltir því fyrir hvert þjóðfélagið stefnir þegar að þingmenn þjóðarinnar sjást á meðal mótmælenda þar sem verið er að grýta lögreglumenn og vinna skemmdarverk. Fjölmiðlar hafa verið duglegir að sýna frá mótmælunum og er það vel en þeir ættu líka hiklaust að spyrja þingmenn út í hugmyndir þeirra um löggæslu í landinu og hvað teljist eðlilegt og hvað ekki, sérstaklega í því árferði sem nú ríkir. Það er mikilvægt að kalla eftir afgerandi skoðunum þeirra þingmanna sem hafa sést á stöðum þar sem að hörð mótmæli hafa verið höfð í frammi og árásir hafa verið gerðar á opinberar stofnanir. Þingmenn hafa einmitt þann starfa að setja þegnunum lög sem allir verða að beygja sig undir. Sannast kannski hið fornkveðna: Með lögum skal land byggja en með ólögum eyða!


Þingmenn hafa farið af taugum

Síðustu dagar hafa sýnt svo ekki verður um villst að vissir þingmenn hafa farið af taugum og ekki ráðið við þá pressu sem að sett hefur verið á þá. Þeir hafa verið duglegir að komið fram í fjölmiðlum og ummæli þeirra hafa oft á tíðum verið misvísandi. Það er ljóst að við erum að fara inn í tíma þar sem að þjóðin þarf sterka og réttsýna leiðtoga. Höfum við 63 leiðtoga á þingi? Þetta er grundvallarspurningin í dag? Höfum við leiðtoga sem að geta tekið óvinsælar ákvarðanir á versta tíma? Í næstu alþingiskosningum þá mun þjóðin kalla eftir fólki sem að hefur afgerandi forystuhæfileika enda hefur hún ekki efni á öðru. Þjóðin þarf að gera upp við sig hvort að hún vill skila lánum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og skrúfa fyrir lífæðina  eins og vinstri grænir hafa lagt til. 

Þjóðin þarf að fá leiðtoga sem að skynja langtímahagsmuni okkar og hvað sé okkur fyrir bestu í núverandi ölduróti fjármálamarkaðanna. Þjóðin þarf leiðtoga sem að geta blásið henni bjartsýni í brjóst og fengið fólk til þess að trúa því að hægt sé að sækja fram á við.

Það er ljóst að það verður erfitt að fá fólk í framboð sérstaklega ef að stjórnmálamenn framtíðarinnar mega eiga von á því að Hallgrímur Helgason rithöfundur banki upp á hjá þeim ef þeir standa sig ekki!

 

 


Aðför að Alþingi Íslendinga

Það hlýtur að vera krafa hins almenna borgara þ.e. þeirra sem að krefjast þess að farið sé eftir landslögum að lögreglan gangi fram fyrir skjöldu og rannsaki strax aðförina að Alþingi Íslendinga. Það gengur ekki í lýðræðisríki að helstu stofnanir þjóðfélagsins séu svívirtar í viðurvist hins almenna borgara og að ekki sé tekið á málum. Hveru eru skilaboðin til æsku landsins með því?

Hegningarlögin er skýr: 

» 100. gr almennra hegningarlaga: „Hver, sem ræðst á Alþingi, svo að því eða sjálfræði þess er hætta búin, lætur boð út ganga, sem að því lýtur, eða hlýðir slíku boði, skal sæta fangelsi ekki skemur en 1 ár, og getur refsingin orðið ævilangt fangelsi, ef sakir eru mjög miklar.“


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband