Fyrirhyggjuveiran skýtur upp kollinum!

Það er ekki annað hægt en að taka undir með framkvæmdastjóra SI með tillöguna um sykurskattinn. Í flestum tilfellum er orsakir tannskemmda vanhirða og það er ljóst að það er sykur í fleiru en gosdrykkjum og mikil einföldun að halda að sykurskattur einn og sér muni bæta tannheilsu barna. Er orsökin á hnignandi tannheilsu ekki einmitt fólgin í lélegu eftirlit og ónógri fræðslu auk þess sem að þátttaka hins opinbera í tannlæknaþjónustu barna og ungmenna er ekki viðunandi? Er þetta ekki kjarni málsins?

Eftir að hafa lesið nýlega blaðagrein, eftir Njörð P. Njarðvík rithöfund og prófessor við Háskóla Íslands, þar sem að hann talar um frjálshyggjuveiruna þá dettur mér helst í hug að við séum að fara inn í tímabil fyrirhyggjunnar núna. Fyrirhyggjuveiran lýsir sér í því að hið opinbera og þeir sem fara með forráð hafa vit fyrir okkur hinum. Í niðurlagi greinar prófessorsins segir að margur hafi veikst illa af veiru frjálshyggjunnar en þegar öllu er á botninn hvolft þá er ekki víst að neysluskattar eins og heilbrigðisráðherra hyggst koma á muni skila tilætluðum árangri, þeir eru hins vegar hluti af fyrirhyggjuveirunni sem lýsir sér í því að menn stökkva á málefnin um leið og þeim er lýst í fjölmiðlum, stundum án þess að menn hafi hugsað málið til enda. Fyrirhyggjuveiran hefur víst sýkt marga illa og það er ekki gott, ekki frekar en hnignandi tannheilsu barna.


mbl.is Tillaga um sykurskatt ótrúleg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Held að það veiti ekki af svolitli fyrirhyggju eftir allt frjálsræðið sem setti allt á hausinn í þessu landi? Hægt er að nta skattheimtuna af sykri til að gefa tanlækningar fríar fyrir 16 og yngri.Það kerfi sem var á hér en Sjálfstæðismenn hafa tekið af ásamt skólatannlæknunum

siggi (IP-tala skráð) 14.5.2009 kl. 23:04

2 identicon

Já þetta er svoldið mikil einföldun á málinu að mér finnst.  Í staðinn fyrir að fara í það ferli að semja við tannlækna eða lagfæra ráðherragjaldskránna þá á að setja á enn einn skattin til að passa okkur fyrir okkur sjálfum!

 Siggi ... athugaðu að skatturinn er ekki einu sinni eyrnamerktur forvörnum tannheilsu barna og hvernig á þá að vera hægt að gera tannlækningar fríar með þessum skatti?

Ásta (IP-tala skráð) 15.5.2009 kl. 01:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband