Jón Gnarr náði á forsíðu 20 minutes í Lausanne

Það er alltaf gaman að sjá þegar að landanum tekst vel upp. Margan stjórnmálamanninn dreymir um að verða frægur, jafnt heima sem í útlöndum. Kannski að Jóni Gnarr sé að takast þetta tvennt þ.e. að verða afburða stjórnmálamaður og afburða grínísti sem tekið er eftir. Jón Gnarr rataði á forsíðu blaðs í Lausanne í Sviss eins og sést hér að neðan. Það er vonandi að frægðin standi lengur en í 20 mínútur!

Jón_Gnarr

 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Ég skil því miður ekki fyrirsögnina í blaðinu og ekki heldur textann sem er fyrir ofan myndina. Gaman væri að fá að vita hvað stendur þarna, jafnvel að fá úrdrátt úr fréttinni.

Gunnar Heiðarsson, 27.5.2010 kl. 17:07

2 Smámynd: Guðmundur Helgi Þorsteinsson

Þeir ræða nú aðallega að grínið sé að taka völdin í henni Reykavík í landi þar sem að fjármálakrísan ríður húsum og í ofanálag þá hafi Eyjafjallajökull enn bætt við eymdina. Greinin inn í blaðinu fjallar um Jón og besta flokkinn og það að hann verði hugsanlega orðinn Borgarstjóri á sunnudaginn.

Kv.

Guðmundur

Guðmundur Helgi Þorsteinsson, 27.5.2010 kl. 21:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband