Morgunblaðið komið til að vera!

Það var ágætt viðtalið við Óskar Magnússon, lögmann í Kastljósi kvöldsins, en hann fer fyrir hópi fjárfesta sem hafa keypt Árvakur hf., útgáfufélag Morgunblaðsins. Ég var sammála mörgu sem að Óskar sagði og ég tel að flaggskip íslenskrar blaðaútgáfu, Morgunblaðið, hafi einatt haft vandaða umfjöllun að leiðarljósi þegar málefni líðandi stundar hafa verið krufin til mergjar. Gæði blaðsins  hafa verið mikil og það er á engan hallað þó sagt sé að alþýðufróðleikurinn hafi lifað með þjóðinni í gegnum blaðið. Auðvitað munu margir deila á mig fyrir að segja þetta en þannig er þetta nú bara. Auðvitað hefur maður ekki alltaf verið sammála því sem sett hefur verið fram á síðum blaðsins, en kjarni málsins og vönduð efnistök hafa ávalt skilað sér til lesandans. Kannski er lykillinn að langlífi blaðsins einmitt fólginn í þeim sannleik að blaðið hefur þróast hægt en ákveðið, á meðan íhaldssemin hefur ráðið ríkjum í útliti og efnistökum. Morgunblaðið er svo sannarlega í heimsklassa og það fer vel á því að framtíðin sé tryggð þegar mikið ríður á að fagleg umfjöllun eigi sér stað.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Rúnar Magnússon

Ég get verið þér sammála um ágæti Morgunblaðsins.  EN, hversu háann tékka skrifaði Óskar, eða var þetta bara skuldsett yfirtaka.  Sem sagt útrásaraðferðin.

Sigurður Rúnar Magnússon, 26.2.2009 kl. 21:03

2 Smámynd: Guðmundur Helgi Þorsteinsson

Greiðslan er náttúrulega stóra spurningin? Það eru ekki skynsamir menn sem að fara í rekstur nú á dögum en þannig virkar einmitt markaðurinn. Þar sem einn sér vandamál þar sér annar tækifæri. Ég held að mogginn búi yfir mjög vanýttum óefnilslegum og jafnframt áþreifanlegum eignum sem eru bundar í hugvit og þekkingu og svo er ekki hægt að verðleggja orðsporið. Það mun taka tíma að uppsker arð af öllum fjárfestingum í því árferði sem við búum í núna.

Guðmundur

Guðmundur Helgi Þorsteinsson, 26.2.2009 kl. 21:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband