Skák en ekki mát!

Það mun verða fróðlegt að fylgjast með framhaldinu og sjá hvernig forsætisráðherra í minnihlutastjórn mun taka á málum Seðlabankans. Það er hreint með ólíkindum að þeir sem að mynduðu fyrri ríkisstjórn og fengu viðamiklar skýrslur og umsagnir Seðlabankans um vöxt og skuldsetningu bankakerfisins séu núna siðapostularnir, sérstaklega þegar þeirra hlutskipti var að hafa yfirumsjón með fjármálakerfinu í landinu. Eru embættismennirnir blórabögglar ástandsins eða eru það stjórnmálamennirnir sem að neita að gangast við fyrri verkum sínum? Forsætisráðherra sagði í viðtali í liðinni viku að hún vonaðist eftir því að bankastjórar Seðlabankans sæju að sér og hjálpuðu til við að gera nauðsynlegar skipulagsbreytingar. Sennilega er besta lausnin á því ástandi sem nú er uppi, að ný ríkisstjórn, sem að hefur umboð endurskipuleggi opinbera geirann og þar á meðal störf Seðlabankans. Þegar reitt er til höggs með sverð hefndarinnar á lofti þá gleymist oft að sá sem mundar sverðið kann að rista djúp sár, sár sem að kunna að kljúfa þjóðina í andstæðar fylkingar til langframa. Er það hið nýja Ísland?


mbl.is Davíð segir ekki af sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðbjörg Elín Heiðarsdóttir

Já sennilega er skák en ekki mát núna.  Getur verið að forsætisráðherrann sé klárari en seðlabankastjórinn og komi með eitthvað annað að spila úr, miðað við þá stöðu sem Davíð er búinn að setja hana í ? Ég einhvern veginn held að Davíð sé ótrúlega klár,og eigi eftir að máta hana gjörsamlega. Tek það fram að ég er ekki í sama flokk og Davíð. Jóhanna klikkaði á smáatriðunum sem forsætisráðherra.

Guðbjörg Elín Heiðarsdóttir, 8.2.2009 kl. 20:48

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Sammála, Guðmundur

Gunnar Th. Gunnarsson, 8.2.2009 kl. 20:53

3 Smámynd: Guðmundur Helgi Þorsteinsson

Gunnar og Guðbjörg,

Mér sýnast enginn önnur rök í málinu en af pólitískum toga. Ef embættismenn þjóðarinnar, hvar í flokki sem þeir standa mega eiga von á því í framtíðinni að næsta ríkisstjórn hreinsi upp eftir þá fyrri þá erum við í vegferð slæmri.

Lifið heil,

Guðmundur

Guðmundur Helgi Þorsteinsson, 9.2.2009 kl. 20:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband